Endoca CBD Húð- og Verkjakrem 450mg CBD
Endoca CBD Húð- og Verkjakrem 450mg CBD
Couldn't load pickup availability
Endoca CBD Húð- og Verkjakrem
Stærð: 30ml
Magn CBD: 450mg
Endoca húðkremin (e. Whipped body butter) eru í senn verndandi og rakagefandi, lífræn, vegan og dýravæn. Á meðal innihaldsefna auk náttúrulega unnins CBD (Cannabinoid) úr iðnaðarhampi og E vítamíns er m.a. sheasmjör, pálmaolía, kakófræsmjör, Cannabis sativa fræolía, kókoshnetuolía, vanillurótarsterkja og býflugnavax – einnig allt unnið með lífrænum hætti.
Tilvalið er að nota kremið á stór svæði eða allan líkamann. Með 450 mg af CBD vinnur kremið með mildum hætti og vætir þurra, sprungna og erta húð ásamt því að draga úr minniháttar óþægindum í vöðvum og liðum.
Verkferlar, notkun og geymsla.
Endoca CBD (Cannabinoid) er náttúruleg afurð úr lífrænt ræktuðum iðnaðarhampi (Cannabis sativa jurt). Vörurnar eru hannaðar í GMP vottuðum rannsóknarstofum undir ströngu lyfjafræðilegu eftirliti. Í Endoca vörunum eru einungis náttúruleg innihaldsefni, glútenlaus og vegan, án erfðabreytinga, tilbúinna lyktarefna, litarefna, eiturefna, rotvarnarefna o.s.frv. Engin innihaldsefnanna styðjast við tilraunir á dýrum. Geymist á dimmum og köldum stað eða a.m.k. í vari fyrir miklum hita og sólarljósi. Notist einungis útvortis og berist ekki í augu.
www.endoca.com
Innihaldsefni:
Organic Shea Butter, Cocoa Seed Butter, Cannabis Sativa Seed Oil, Coconut Oil, Tapioca Starch, Vanilla Extract, Beeswax, Vitamin E, Hemp Extract (450mg CBD, 15mg per 1ml).
Share



