Skoða sölustaði

Hvað er Gott CBD?

„Gott CBD“ er tákn um gæði. Merkið er einungis sett á þær CBD-vörur sem við höfum fullreynt að standi undir kröfum sem við gerum til gæða hráefnisins, hreinleika í framleiðsluferlinu og áreiðanleika í upplýsingagjöf, t.d. hvað varðar uppgefið magn af CBD í hverri vöru. Með græna miðanum leggjum við heiður okkar að veði. Þú getur treyst því.

Um CBD

CBD hefur verið mikið í umræðu og fréttum víða um heim að undanförnu vegna fjölbreyttra áhrifa sinna til bættrar heilsu. Víðfeðmar undirbúningsrannsóknir gefa sterkar vísbendingar um ýmis jákvæð áhrif af tengingum CBD kannabínóða (e. cannabinoid) við endókannabínóðakerfið (e. endocannabinoid system (ECS)) sem verið hefur til staðar í lífríkinu og manninum frá örófi alda. CBD er á meðal innihaldsefna í lyfseðilsskyldum tauga- og flogaveikislyfjum og í vísindasamfélaginu er almenn viðurkenning á jákvæðum áhrifum CBD á t.d. kvíða, streitu og svefn ásamt því að þekkt virkni er t.d. á bólgur og verki. Um þessar mundir er m.a. unnið að fjölmörgum rannsóknum á áhrifum CBD á ónæmis- og stoðkerfið. Langt er í frá að allar CBD vörur séu svipaðar. Þar getur m.a. munað um ólíkar ræktunar- og vinnsluaðferðir og sömuleiðis eru alltof mörg dæmi um að raunverulegt magn af CBD sé minna en upp er gefið. Þess vegna þarf að velja framleiðendur af kostgæfni.