Skip to product information
1 of 3

Dr. Kent CBD Glúkósamín, Kæli/Hita- og Verkjakrem

Dr. Kent CBD Glúkósamín, Kæli/Hita- og Verkjakrem

Verð 7.990 kr
Verð Útsöluverð 7.990 kr
Útsala Uppselt
m/vsk

Dr. Kent CBD Glúkósamín, Kæli/Hita- og Verkjakrem
Stærð: 100ml
Magn CBD: 550mg
Heilvirkt CBD (full spectrum)
Ráðlögð notkun: Þunnt lag 1-2svar á dag á valin svæði, nuddist vel inn í húðina.

Dr. Kent CBD glúkósamínkremið býr yfir fjölbreyttri samsetningu ólíkra innihaldsefna. Í glúkósamínkreminu er mikið magn af lífrænt ræktuðu CBD og meðal annars glúkósamín súlfat, sem hægir á brjóskeyðingu og örvar brjóskmyndun. Glúkósamín gagnast því t.d. vel við slitgigt. Glúkósamínkreminu er einkum ætlað að milda verki í baki, herðum og hálsi, handleggjum og fótum. Margir upplifa skjóta virkni fyrst sem snögga kælingu í húðinni en síðan strax í kjölfarið hitatilfinningu og verkjastillingu.

Á meðal annarra virkra efna í Dr. Kent glúkósamínkreminu eru m.a. mentól, kamfóra, metýl salicisýlat, negulnaglailmkjarnaolía, útdráttur úr sterkum pipar, natríum kondróatín súlfat, MSM (lífrænn brennisteinn), sterínsýra o.fl. Allt eru þetta náttúruleg efni og vandlega ígrunduð samsetning þeirra í Dr. Kent glúkósamínkreminu hefur fagnað miklum vinsældum víða um heim.

Verkferlar og geymsla.

CBD innihaldsefnið í Dr. Kent glúkósamínkreminu er unnið úr lífrænt ræktuðum iðnaðarhampi (Cannabis Sativa L). Kappkostað er að önnur innihaldsefni séu séu unnin með vönduðum og vottuðum hætti. Framleiðandinn skartar m.a. GMP vottun (Good Manufacturing Practise). Ræktun iðnaðarhampsins er GACP (Good Agricultural and Collection Practices)vottuð og útdráttur CBD kannabínóðanna er gerður með koldíoxíðpressun eingöngu án nokkurra aukefna. Framleiðslan er unnin undir stöðugu gæðaeftirliti ISO/IEC 17025 staðals. Glúkósamínkremið er fáanlegt í 100 ml. áltúpum og best er að geyma það utan mikillar birtu og hita. Geymist þar sem börn ná ekki til.

- Athugið að kremið getur litað föt

Framleiðandinn.

Framleiðandi Dr. Kent glúkósamínkremsins er PharmaHemp d.o.o. Fyrirtækið hefur ræktað iðnaðarhamp í Slóveníu og framleitt hampolíu í áratugi ásamt því að vera einn af fyrstu framleiðendum CBD snyrtivara í Evrópu. Þær eru um þessar mundir seldar í yfir 60 þjóðlöndum víða um heim.

www.pharma-hemp.com

Innihaldsefni:

AQUA, STEARIC ACID, COCO-CAPRYLATE/CAPRATE, PERSEA GRATISSIMA OIL, DIMETHYL SULFONE, CANNABIS SATIVA BIOMASS EXTRACT, CAPRYLIC/CAPRIC TRIGLYCERIDE, CETEARYL ALCOHOL, GLYCERYL STEARATE, SQUALANE, MENTHOL, CAMPHOR, METHYL SALICYLATE, SODIUM CHONDROITIN SULFATE, GLUCOSAMINE SULFATE, SORBITAN CAPRYLATE, PROPANEDIOL, BENZOIC ACID, EUGENIA CARYOPHYLLUS FLOWER OIL, SODIUM CETEARYL SULFATE, CAPSICUM FRUTESCENS FRUIT EXTRACT, ROSMARINUS OFFICINALIS EXTRACT, BRASSICA CAMPESTRIS SEED OIL, EUGENOL, ISOEUGENOL

Ábending:

Þeim sem taka blóðþynningarlyf er ráðlagt frá því að nota Dr. Kent glúkósamínkremið og ágæt varúðarregla er að ráðfæra sig við heilbrigðisstarfsfólk ef reglubundin notkun þess til langs tíma er fyrirhuguð. Forðist að kremið komist í snertingu við slímhúð, augu, viðkvæm svæði eða skemmda húð. Gott er að þvo sér vel um hendur eftir að kremið er borið á. Ekki er ráðlegt að nota kremið á börn undir tólf ára aldri.

 

Skoða allar upplýsingar

„Gott CBD“ er tákn um gæði. Merkið er einungis sett á þær CBD-vörur sem við höfum fullreynt að standi undir kröfum sem við gerum til gæða hráefnisins, hreinleika í framleiðsluferlinu og áreiðanleika í upplýsingagjöf, t.d. hvað varðar uppgefið magn af CBD í hverri vöru. Með græna miðanum leggjum við heiður okkar að veði. Þú getur treyst því.