Skip to product information
1 of 4

3% Full Spectrum CBD Olía frá Endoca

3% Full Spectrum CBD Olía frá Endoca

Verð 5.990 kr
Verð Útsöluverð 5.990 kr
Útsala Uppselt
m/vsk

Stærð : 10ml

Magn CBD : 300mg (3%)

 
Heilvirkt CBD (full spectrum)


Endoca CBD hampolían lágmarkar breytingar í litrófi efnasambanda iðnaðarhampsins (full spectrum) með eins varfærnu hitunarferli og frekast er unnt. Olían er fáanleg í 10 ml. flösku með dreypara (pípettu). Í hverri flösku eru um 300 dropar og eru því um 1mg af CBD í hverjum dropa. Olían er bæði lífræn og vegan og THC innihald er minna en 0.2%. Uppistaða hinnar fjölþættu virkni í hampolíunni er fólgin í CBD kannabínóíðum. Að auki eru í olíunni um 130 aðrir kannabínóíðar hampsins og fjöldi mikilvægra vítamína og steinefna ásamt ilm- og bragðefnum plöntunnar sem gjarnan eru talin eiga ríkan þátt í virkni olíunnar.

Endoca hampolían inniheldur engin gerviefni. Í henni, eins og í ýmsum öðrum góðum CBD vörum, eru einungis efni sem óhætt er að borða (e. eatable). Öll innihaldsefni eru náttúruleg og lífræn og allt vinnsluferli Endoca er sömuleiðis án hvers kyns tilbúinna eða ólífrænna efna.

Ráðlögð notkun.
Endoca ráðleggur viðskiptavinum sínum að byrja að nota 1-2 dropa á húð 2-3x daglega

Innihaldsefni:
Hemp seed oil (80%), Omega 3 (1.25g), Omega 6 (4g), Vitamin E (8mg) phytocannabinoids cannabidiol 3% (CBD 300mg), low concentrations of the natural forms of (CBC, CBG, CBN). Terpenes: Myrcene, Limonene, Alpha & Beta-pinene, Linalool, B-caryophyllene, Caryophyllene oxide, Terpinolene, and Humulene. Other natural molecules: Cannabis plant waxes, flavonoids (Quercetin, Apigenin, and Cannaflavin), alkanes, nitrogenous compounds, amino acids, ketones, glycosides, vitamins, pigments, water, cofactors, and co-nutrients.


Um framleiðandann
Stofnandi og stjórnandi Endoca er danski líftæknifræðingurinn og vísindamaðurinn Henry Vincenty. Í námi sínu sannfærðist hann um virkni CBD sem styður endókannabínóíðakerfi líkamans (e. endocannabinoid system (ECS))

Endoca hefur allt frá fyrsta starfsdegi sínum sett CBD framleiðendum víða um heim metnaðarfull viðmið í gæðakröfum fyrir ræktun iðnaðarhamps, sem í tilfelli Endoca fer öll fram við bestu mögulegu veðurskilyrði í N-Evrópu, og náttúrulegum framleiðsluferlum CBD snyrtivara. Alþjóðlega rannsóknarfyrirtækið Trustpilot gefur vörum Endoca fjóra og hálfa stjörnu af fimm mögulegum og byggir þá ágætiseinkunn sína m.a. á umsögnum u.þ.b. fimm þúsund notenda.


Ábending:Best er að geyma Endoca vörurnar í vari frá sterku sólarljósi eða miklum hita. Við íslenskar aðstæður er óþarft að geyma olíuna í ísskáp. Börnum, barnshafandi konum og konum með barn á brjósti er ekki ráðlagt að nota olíuna. Ef upp koma óþægindi í húð eða olían berst í augu skal skola með vatni.

Skoða allar upplýsingar

„Gott CBD“ er tákn um gæði. Merkið er einungis sett á þær CBD-vörur sem við höfum fullreynt að standi undir kröfum sem við gerum til gæða hráefnisins, hreinleika í framleiðsluferlinu og áreiðanleika í upplýsingagjöf, t.d. hvað varðar uppgefið magn af CBD í hverri vöru. Með græna miðanum leggjum við heiður okkar að veði. Þú getur treyst því.