Skip to product information
1 of 5

Endoca CBD Húð- og Verkjakrem 1500mg CBD

Endoca CBD Húð- og Verkjakrem 1500mg CBD

Verð 12.990 kr
Verð Útsöluverð 12.990 kr
Útsala Uppselt
m/vsk
Endoca CBD Húð- og Verkjakrem
Stærð: 100ml
Magn CBD: 1.500mg

Endoca húðkremin (e. Whipped body butter) eru í senn verndandi og rakagefandi, lífræn, vegan og dýravæn. Á meðal innihaldsefna auk náttúrulega unnins CBD (Cannabinoid) úr iðnaðarhampi og E vítamíns er sheasmjör, kakófræsmjör, Cannabis sativa fræolía, kókoshnetuolía, vanillurótarsterkja og býflugnavax – einnig allt unnið með lífrænum hætti.

Tilvalið er að nota kremið á stór svæði eða allan líkamann. Með verulegu magni af CBD, 1.500 mg í hverjum 100 ml, er kreminu ætlað að vinna með öflugum hætti og væta þurra, sprungna og erta húð ásamt því að draga úr óþægindum í vöðvum og liðum, t.d. eftir strangar æfingar eða önnur átök.

Verkferlar, notkun og geymsla.
Endoca CBD (Cannabinoid) er náttúruleg afurð úr lífrænt ræktuðum iðnaðarhampi (Cannabis sativa jurt). Vörurnar eru hannaðar í GMP vottuðum rannsóknarstofum undir ströngu lyfjafræðilegu eftirliti. Í Endoca vörunum eru einungis náttúruleg innihaldsefni, glútenlaus og vegan, án erfðabreytinga, tilbúinna lyktarefna, litarefna, eiturefna, rotvarnarefna o.s.frv. Engin innihaldsefnanna styðjast við tilraunir á dýrum. Geymist á dimmum og köldum stað eða a.m.k. í vari fyrir miklum hita og sólarljósi. Notist einungis útvortis berist ekki í augu.

www.endoca.com

Innihaldsefni:
Organic Shea Butter, Cocoa Seed Butter, Cannabis Sativa Seed Oil, Cannabis Sativa (CBD), Coconut Oil, Tapioca Starch, Vanilla Extract, Beeswax, Vitamin E, Hemp Extract (1500mg).

Meira um CBD.
CBD hefur verið mikið í umræðu og fréttum víða um heim að undanförnu vegna fjölbreyttra áhrifa sinna til bættrar heilsu. Víðfeðmar undirbúningsrannsóknir gefa sterkar vísbendingar um ýmis jákvæð áhrif af tengingum CBD (cannabinoid) við endókannabínóðakerfið (endocannabinoid system (ECS)) sem verið hefur til staðar í lífríkinu og manninum frá örófi alda. CBD er á meðal innihaldsefna í lyfseðilsskyldum taugalyfjum og í vísindasamfélaginu er almenn viðurkenning á jákvæðum áhrifum CBD á taugakerfið, t.d. kvíða, streitu og svefn ásamt því að virkni á t.d. bólgur og verki er jafnframt þekkt. Unnið er m.a. að fjölmörgum rannsóknum á áhrifum CBD, m.a. á ónæmis- og stoðkerfið. Langt er í frá að allar CBD vörur séu svipaðar. Þar getur m.a. munað um ólíkar ræktunar- og vinnsluaðferðir og sömuleiðis eru alltof mörg dæmi um að raunverulegt magn af CBD sé minna en upp er gefið. Þess vegna þarf að velja framleiðendur af kostgæfni.
Skoða allar upplýsingar

„Gott CBD“ er tákn um gæði. Merkið er einungis sett á þær CBD-vörur sem við höfum fullreynt að standi undir kröfum sem við gerum til gæða hráefnisins, hreinleika í framleiðsluferlinu og áreiðanleika í upplýsingagjöf, t.d. hvað varðar uppgefið magn af CBD í hverri vöru. Með græna miðanum leggjum við heiður okkar að veði. Þú getur treyst því.